15.09.1943
Efri deild: 18. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 641 í B-deild Alþingistíðinda. (941)

33. mál, ríkisframfærsla sjúkra manna og örkumla

Frsm. (Haraldur Guðmundsson):

Ég vildi mega mælast til við hv. d., að hún léti frv. ganga til 3. umr. nú þegar, því að ekki hefur enn gefizt tækifæri til að ræða við berklayfirlækni, þar sem hann er ekki kominn heim úr sumarleyfi, en eins og ég gat um við 1. umr., ætlaði n. að leita álits hans og ýmiss konar vitneskju í sambandi við þetta mál.