26.10.1943
Neðri deild: 38. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 644 í B-deild Alþingistíðinda. (949)

33. mál, ríkisframfærsla sjúkra manna og örkumla

Frsm. (Sigurður E. Hlíðar):

Herra forseti. Þessu frv. á þskj. 114, sem kom frá Ed., var vísað til heilbr.- og félmn., og var n. sammála um að leggja til, að frv. yrði samþ. með nokkrum breytingum. Einkum er breyt. við 1. gr., en aftan við hana komi nýr liður á þá leið, að ráðherra skuli setja með reglugerð nánari ákvæði um það, hvað telja beri alvarlega, langvarandi sjúkdóma. Þetta taldi nefndin rétt, að stæði í l., en ákvæði um það hefur vantað áður. 2. og 3. brtt. leiðir af sjálfu sér og þurfa ekki skýringa við. N. leggur eindregið til, að frv. verði samþ. með þessum breyt.