03.11.1943
Efri deild: 43. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 645 í B-deild Alþingistíðinda. (954)

33. mál, ríkisframfærsla sjúkra manna og örkumla

Frsm. (Haraldur Guðmundsson) :

Þær breyt., sem Nd. hefur gert á þessu frv., er að finna í tveimur fyrstu gr. frv. eins og það er nú. Hefur verið bætt tveimur greinum framan við frv., og er sú fyrri um, að ráðh. skuli setja með reglugerð nánari ákvæði um, hvað telja skuli alvarlega, langvarandi sjúkdóma, og sú síðari um, að framfærslusveit skuli greiða 1/5 kostnaðar, ef sjúklingur nýtur styrks samkvæmt 4. gr. l. Í 3. gr. eru leiðréttar tilvísanir. Þessar breyt. eru leiðréttingar, sem gera frv. skýrara og falla saman við meginefni þess.