14.10.1943
Neðri deild: 32. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 646 í B-deild Alþingistíðinda. (959)

43. mál, lendingarbætur í Hnífsdal

Finnur Jónsson:

Ég vil í fjarveru frsm. geta þess, að sjútvn. hefur athugað þetta frv. og sent það vitamálastjóra til umsagnar, og leggur hún til, að það verði samþ. með lítils háttar orðabreytingu.