10.01.1945
Efri deild: 98. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 773 í B-deild Alþingistíðinda. (1096)

230. mál, tekjuskattsviðauki 1945

Fjmrh. (Pétur Magnússon):

Herra forseti. — Við umr. um fjárlfrv. gerði ég, grein fyrir efni þessa frv., sem hér liggur fyrir. Ég skal láta þess getið, að frv. hefur gengið mótatkvlaust gegnum Nd., og hef ég leyft mér að mæla með, að því verði vísað til 2. umr. og fjhn. til athugunar.