15.02.1945
Efri deild: 128. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 777 í B-deild Alþingistíðinda. (1120)

250. mál, ríkisreikningar 1941

Frsm. (Bernharð Stefánsson):

Herra forseti. Fjhn. þessarar d. hefur athugað frv. og borið tölul. þess saman við ríkisreikninginn endurskoðaðan, og er hann samhljóða. Leggur því n. til, að frv. verði samþ. óbreytt, án þess að hún taki nokkra afstöðu til þess, hvort allar útborganir ríkissjóðs á árinu hafi verið nauðsynlegar. Lýtur þar n. venju um samþykkt ríkisreikninga.