22.02.1945
Neðri deild: 135. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 876 í B-deild Alþingistíðinda. (1230)

283. mál, skattgreiðslur h/f Eimskipafélags Íslands

Barði Guðmundsson:

Herra forseti. — Vegna þess að þetta fyrsta ákvæði var ekki samþ., má til að breyta orðalaginu undir 3. málslið: „Fram fari á árinu“; það verður þá að vera: Fram fari á árunum. — Það er hastarlegt, að það skuli þurfa að slíta þetta svona heiftarlega sundur. Ég skoða það, að það leiði af eðli málsins, að þetta sé leiðrétt.