23.02.1944
Efri deild: 13. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 900 í B-deild Alþingistíðinda. (1294)
22. mál, Menntaskóla á Akureyri
Frsm. (Jónas Jónsson):
Menntmn. hefur haft þetta mál til meðferðar. Einn nm. var lasinn, þegar málið var afgr., en hinir tveir mæla með, að það verði samþ. óbreytt.
Það er ekki ástæða til að fjölyrða um frv. Þar er farið fram á, að kennarar við Menntaskólann á Akureyri hafi sama kennslustundafjölda og stéttarbræður þeirra í Reykjavík. Það getur ekki verið réttlátt, að þeirra kostur sé á neinn hátt þrengri. Þetta er því einfalt réttlætismál, og mælir n. með„ að frv. verði samþ. óbreytt.