25.02.1944
Efri deild: 15. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 905 í B-deild Alþingistíðinda. (1331)

42. mál, lendingarbætur í Höfnum

Frsm. (Guðmundur Í. Guðmundsson):

Herra forseti. — Sjútvn. hefur haft þetta frv. til athugunar og einnig borið frv. saman við gildandi l. um lendingarbætur. Að þeirri athugun lokinni leggur n. einróma til, að frv. verði samþ. óbreytt eins og það liggur fyrir.

Þess vil ég þó geta, að einn hv. nm. gat ekki komið á fund, þegar málið var tekið fyrir. En það er ekki vitað, að hann hafi neinar aths. við niðurstöður n. að gera.