04.03.1944
Neðri deild: 25. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 914 í B-deild Alþingistíðinda. (1410)

50. mál, atkvæðagreiðsla um niðurfellingu dansk-íslenzka sambandslagasamningsins og lýðveldisstjórnarskrár Ís

Frsm. (Eysteinn Jónsson):

Herra forseti. — Stjskrn. hefur athugað þetta mál, sem hér liggur fyrir, og flytur brtt. á þskj. 133 við frv. á þskj. 114. Fyrri gr. er á þá leið að vísa um atkvgr. stjskrl. frá 1943 í stað lýðveldisstjskr., sem nú hefur verið samþ. á Alþ., því að sú síðari hefur ekki fengið staðfestingu. Önnur brtt. er í samræmi við þetta og er orðabreyt. í fyrirsögn frv.