04.03.1944
Neðri deild: 25. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 920 í B-deild Alþingistíðinda. (1438)

62. mál, dýrtíðarráðstafanir

Einar Olgeirsson:

Ég skal ekki að svo stöddu ræða þetta mál. Ég hef ekki kynnt mér það svo, að ég treysti mér að taka til máls um það, en ég held, að rök hv. frsm. séu rétt. En ég álít, að heppilegra sé, að till. eins og þessi fái athugun í n, þeirri, sem hefur haft með dýrtíðarmálin að gera. Ég vil því leggja til, að till. verði vísað til fjhn.