09.03.1944
Efri deild: 25. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 935 í B-deild Alþingistíðinda. (1475)

62. mál, dýrtíðarráðstafanir

Bjarni Benediktsson:

Út af fyrir sig get ég verið þessari brtt. samþykkur að efni til, en bæði er það, að ég tel það hafa komið nægilega skýrt fram á síðasta Alþ., að meiri hl. þess teldi, að ríkisstj. hefði ekki heimild til greiðslna þessara úr ríkissjóði, nema samþykki Alþ. kæmi til, og því óþarft að samþ. þetta nú, og eins hitt, að þetta frv., sem hér liggur fyrir, gengur raunverulega í þá átt að skapa leiðréttingu fyrir sérstök landbúnaðarhéruð, og ef frv. væri breytt úr því, sem orðið er, mundi það sennilega daga uppi. Ég get þess vegna ekki greitt atkv. með brtt. og segi nei.