09.03.1944
Efri deild: 25. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 935 í B-deild Alþingistíðinda. (1476)

62. mál, dýrtíðarráðstafanir

Brynjólfur Bjarnason:

Þar sem það er ekki undir skilningi Alþ. komið, heldur undir skilningi hæstv. ríkisstj., hvort hún muni nota þá heimild, sem hún telur sig hafa í dýrtíðarl. til áðurnefndra niðurgreiðslna, og þar sem ég tel, að samþykkt þessarar till. þurfi engin áhrif að hafa á afgreiðslu málsins í heild, og þar sem fram kom á síðasta Alþ., að meiri hl. þm. var henni samþykkur, segi ég já.