01.03.1944
Efri deild: 19. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 950 í B-deild Alþingistíðinda. (1578)

46. mál, lendingarbætur í Örlygshöfn

Frsm. (Gísli Jónsson):

Herra forseti. — Sjútvn. hefur haft þetta mál til meðferðar og borið það saman við gildandi l. um lendingarbætur. Leggur hún til, að frv. verði samþ. með ofur lítilli breyt., eins og tekið er fram á þskj. 104, að við 12. gr. bætist orðin „upphæð vörugjalds“.

Ég sé ekki ástæðu til að fara frekar orðum um frv. N. leggur til, að það verði samþ. með þessari breyt.