12.10.1944
Efri deild: 58. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 963 í B-deild Alþingistíðinda. (1664)
97. mál, tilraunastöð
Frsm. (Þorsteinn Þorsteinsson):
Herra forseti. Frv. þetta, sem hér liggur fyrir, er komið til baka frá hv. Nd. Það hafði verið til meðferðar í þessari hv. d. og var afgr. héðan úr d. með góðu samkomulagi. Í hv. Nd. var svo sett inn í það lítils háttar breyt., þannig að reisa skyldi þessa tilraunastöð, þegar fé er veitt til þess í fjárl., þ.e. þessum orðum: „þegar fé er veitt til þess í fjárl.“ — var í hv. Nd. bætt inn í 1. gr. frv.
Yfirleitt virðist þessi breyt. vera algerlega ónauðsynleg, vegna þess að í l. nr. 64 7. maí 1940 er í raun og veru talað um, að það séu því aðeins gerðar þessar tilraunastöðvar, að veitt sé fé til þeirra í fjárl. og fjárveiting um það liggi fyrir. En mér sýnist, að þetta innskot hv. Nd. muni geta spillt fyrir þessu máli, ef samþ. verður þannig, vegna þess að þá verður þetta sérákvæði í l. varðandi þessa einu tilraunastöð, og gæti það skilizt þannig, að það verði að koma sérstök fjárveiting til hennar út af fyrir sig í fjárl. Getur það verið athyglisvert í því sambandi, ef fé er veitt til slíkra tilraunastöðva í fjárl., hvort stjórn búnaðarmálanna muni þá kannske ekki þykja þurfa frekari áherzlu frá hendi löggjafans, ef veita á fé til þessarar tilraunastöðvar, svo framarlega sem sérstaklega er tekið fram í l. um hana, að hana skuli reisa, þegar fé sé veitt til þess í fjárl. Stjórn búnaðarmálanna kynni þá að þykja þörf á því, að það liggi fyrir, að í fjárl. sé sérstaklega tekið fram, að til þessarar tilraunastöðvar sé veitt fé. En ég vil láta það sama ganga yfir þessa tilraunastöð og aðrar slíkar tilraunastöðvar, en ekki láta skera neitt úr um hana. — Ég veit, að hv. flm. vill hafa þetta eins og ég hef lýst sem vilja mínum, og landbn. öll var sammála um að leggja til, að breyt., sem sett var inn í frv. í hv. Nd., yrði felld burt, þar sem hún væri engum til gagns, en gæti verið til óþæginda fyrir þetta frv. Hefur landbn. gert á þskj. 413 till. um, að þessu verði aftur breytt til hins fyrra horfs, sem málið var afgr. í frá þessari hv. d.