25.09.1944
Efri deild: 49. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 976 í B-deild Alþingistíðinda. (1727)

94. mál, byggingarmálefni Reykjavíkur

Frsm. (Bjarni Benediktsson):

Herra forseti. — Við 1. umr. þessa máls gerði ég nokkra grein fyrir eðli þess, auk þess sem frv. fylgir ýtarleg grg. Get ég látið nægja að vísa til þessa hvors tveggja nú.

Þar sem allshn. varð einhuga um að mæla með því, að frv. yrði samþ. óbreytt, læt ég máli mínu lokið.