23.10.1944
Neðri deild: 69. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 1062 í B-deild Alþingistíðinda. (1972)
171. mál, ríkisborgararéttur
Frsm. (Garðar Þorsteinsson):
Herra forseti. Til allshn. Nd. hafa borizt nokkur erindi frá dómsmrn. um að veita hér búsettum mönnum íslenzkan ríkisborgararétt. N. hefur því eftir ósk ráðuneytisins flutt frv., sem er 171. þingmál, um að veita ríkisborgararétt sex mönnum, og eru það þessir: Christensen, Evald Mads Karl, fæddur 21. maí 1905 í Danmörku, Jensen-Brand, Svava Andrea, fædd 7. marz 1920 í Kanada, Petersen, Johan, fæddur 11. júní 1906 í Noregi, Kristensen, Aksel, fæddur 24. febr. 1893 í Danmörku, Sen, Jón, fæddur 9. febr. 1924 í Kína, og Torgilstveit, Martin Hansen, fæddur 19. febr. 1905 í Noregi.
Þessir menn allir uppfylla skilyrði laganna um að hafa verið búsettir hér á landi í 10 ár, nema Martin Hansen. Hann hefur dvalizt hér í meir en 10 ár, en ekki samfleytt, því að árin 1937–38 dvaldist hann í Noregi, og hann gefur þá skýringu á því, að hann hafi farið þangað í kynnisför og dvalizt hjá ættingjum sínum með konu sína og börn. Það hefur ekki verið hægt að fullnægja því ákvæði l., að menn útvegi sér hegningarvottorð frá heimalandi sínu, eins og þeim ber að gera, enda hafa ekki verið möguleikar til sambands við heimalöndin vegna stríðsástæðna. Ég vil geta þess, að það hefur verið siður frá því stríðið brauzt út árið 1939 að veita mönnum ríkisborgararétt með l., þó að þessu ákvæði hafi ekki verið fullnægt. Í l. frá 1934 stendur, að l. geti ekki komið til framkvæmda og menn fái ekki ríkisborgararétt, nema þessu skilyrði sé fullnægt.
Ég hef kynnt mér það hjá dómsmálaráðuneytinu, að þrátt fyrir þetta ákvæði l. hafa verið gefin út ríkisborgarabréf til þeirra manna, sem þess hafa óskað, þó að þessu ákvæði l. hafi ekki verið fullnægt. Hins vegar vil ég benda á það, til þess að það mætti vera til athugunar síðar, að sjálfsagt er og rétt, þegar veita á ríkisborgararétt undir eðlilegum kringumstæðum og menn ná til heimalandsins, að þá sé þessu ákvæði l. fullnægt, og mætti ákveða, að l. falli úr gildi, ef þessu ákvæði er ekki fullnægt innan 12 ára.
Þeir aðrir menn, sem sent hafa umsóknir, fullnægja ekki ákvæðum l. hvað snertir búsetu hér á landi, og einn er sem stendur í skuld, sem varnar því, að hann fái ríkisborgararétt.