26.02.1944
Efri deild: 16. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 141 í B-deild Alþingistíðinda. (211)

31. mál, sparisjóðir

Fjmrh. (Björn Ólafsson):

Herra forseti. — Þetta frv. hefur legið fyrir Nd. og náð að ganga þar í gegn án breyt.

Eins og er, eru engin ákvæði í l. um sparisjóði um það, hvað um þá skuli verða, ef þeir hætta störfum, nema um gjaldþrot sé að ræða. Nú er mér tjáð, að eitt slíkt tilfelli sé í vændum, og því er þetta frv. fram komið. Vænti ég, að því verði vísað til 2. umr. og fjhn.