16.02.1944
Neðri deild: 14. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 146 í B-deild Alþingistíðinda. (226)
27. mál, skipun læknishéraða
Jörundur Brynjólfsson:
Ég vil þakka heilbr.- og félmn. fyrir skjóta og að mörgu leyti góða afgreiðslu á málinu. Það þakklæti mitt nær til beggja nefndarhluta, þótt þeim beri nokkuð á milli.
Við því er að búast, að einhverjir héraðsbúar þykist verr settir, ef læknissetrið er flutt að Selfossi miðhéraðs, en hefur verið á héraðsenda. Þess er ekki að vænta, að unnt sé að koma því svo fyrir, að engir hafi óhagræði af, en allir gagn. Langsamlega flestir íbúar læknishéraðsins eiga auðveldara að sækja lækni að Selfossi en Eyrarbakka. Þeir í Gaulverjabæjarhreppi eiga það, því að ferðirnar eru margfalt oftar þaðan upp að Selfossi. Það eru þá nær eingöngu Eyrbekkingar og ef til vill Stokkseyringar, sem óhagræði hafa af færslunni. Það má vera, að sem stendur sé Selvogsbúum oft auðveldara að ná til læknis á Eyrarbakka en Selfossi. En með bættum vegum hlýtur leiðin frá Selvogi að liggja í miðju héraðsins, en samgöngurnar þaðan til Eyrarbakka að tregðast, svo að þar ber að sama brunni og í öðrum sveitum.
En líta þarf á fleira en það, hvar hagkvæmast er að vitja læknisins. Ég get skírskotað til þess, sem landlæknir segir í bréfum sínum í grg. frv. um aðstöðu Eyrarbakkalæknis, eftir að læknir væri kominn að Selfossi. Það er ekki þýðingarlítið að búa svo að þessum héruðum, að þau verði eftirsótt og aðstaða verði þar til hinna þýðingarmeiri læknisverka. Húsakostur þarf að verða allfullkominn og læknir að geta tekið sjúklinga heim til sín. Ef hérað er mjög lítið, er hætt við, eins og fram kom hjá landlækni og hv. 1. þm. Rang., að bæði verði torvelt að gera læknissetur vel úr garði og fá þangað góða lækna. Hins vegar mega héruðin ekki vera of víðlend. En þarna er ekki það að óttast. Ég get ekki neitað því, að ég hef dálítinn kvíða um, ef læknishéraðinu er skipt í tvennt, að e.t.v. yrði að hvorugu búið svo vel sem vera ætti, og teldi ég þá mjög illa farið. Eins er hætt við, að læknar, sem framgjarnir eru, kynnu þá að sniðganga þessi héruð og leita heldur þangað, sem þeim virtist krafta sinna meiri þörf. Sú er skoðun heilbrigðisstjórnarinnar, að á þessu hvoru tveggja sé mikil hætta.
Mér virðist þannig vera betur séð fyrir allra hag með því, að héraðið skiptist ekki, en Eyrbekkingum verði gert sem greiðast fyrir um not af lækninum eða læknum þeim tveim, sem héraðið ætti að fá, og gæti aðstoðarlæknirinn átt heima á Eyrarbakka. — Ég mun ekki treysta mér til að vera með brtt. um að kljúfa héraðið. Ég vildi leggja til þess lið mitt eins og ég get, að það verði gert, sem hv. 11. landsk. ber fyrir brjósti, að Eyrbekkingar fái sem bezta læknishjálp eftir sem áður með því móti, sem landlæknir leggur til. Við 3. umr. mætti athuga betur, hvernig hægt muni að tryggja það frekar, að úr því verði.