11.01.1945
Efri deild: 100. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 1177 í B-deild Alþingistíðinda. (2301)
213. mál, hafnarlög fyrir Keflavík
Frsm. (Guðmundur Í. Guðmundsson):
Herra forseti. Í gildandi hafnarl. fyrir Keflavík er heimild til þess að veita úr ríkissjóði allt að 680 þús. kr. styrk til hafnarbóta í Keflavík, svo og heimild til þess, að ríkið gangi í tilsvarandi ábyrgð, eftir því sem venja er. Fyrir þá fjárhæð, sem heimilt er að veita úr ríkissjóði til þessara framkvæmda, hefur þegar verið unnið í Keflavík að ýmiss konar hafnarbótum.
Nú er í ráði að vinna þarna meira að þessu, lengja nokkuð þann hafnargarð, sem þar er fyrir. Og það er talið, að þetta muni kosta 11/2 millj. kr. Fé hefur enn ekki verið veitt til þessa verks, en Keflvíkingar sækja mjög fast, að ríkissjóður veiti þeim styrk til þess að koma þessu verki í framkvæmd. En til þess að hægt sé að hraða því máli, er nauðsynlegt að gera breyt. á hafnarl. þannig, að ef Alþ. vildi gera um þetta fjárveitingarákvæði, þá sé heimild til þess í hafnarl. Og þetta frv. er undirbúningsráðstöfun að þessu, þar sem lagt er til, að fjárveiting til Keflavíkurhafnar sé hækkuð úr 680 þús. kr. í 1.280.000 kr. og ábyrgðarheimildin tilsvarandi.
Hér er því ekki um annað að ræða en heimild til þess að nota þetta fé til framkvæmdar hafnarmannvirkja í Keflavík, þegar Alþ. sér ástæðu til að veita það.
Vitamálastjóri leggur með þessu frv., og sjútvn. þessarar d. leggur einróma til, að frv. verði samþ.