06.12.1944
Neðri deild: 88. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 1179 í B-deild Alþingistíðinda. (2314)
56. mál, hafnarlög fyrir Hrísey
Þóroddur Guðmundsson:
Herra forseti. — Ég vildi aðeins segja það, að ég get að vissu leyti fallizt á álit vitamálastjóra og vil með tilliti til þess, hversu þetta mál hefur dregizt lengi, taka fram, að þar sem ég tel þurfa að koma málinu fram á þessu þingi, vil ég una því, að tölum verði breytt á þann hátt, sem stungið er upp á í áliti sjútvn.,
og treysti því þá líka, að hafizt verði handa um það á Alþ. á sínum tíma að hækka aftur þessar tölur, ef þörf krefur.