30.01.1945
Efri deild: 114. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 56 í C-deild Alþingistíðinda. (2508)

95. mál, loðdýrarækt

Forseti (StgrA):

Ég hef nú, eins og hv. þm. Dal. sagði, átt tal við hann um þetta utan fundar, og ég hef sagt honum frá því, að ég mundi áreiðanlega afgreiða þetta mál áður en þingi lyki og einnig annað mál, sem lengi hefur beðið og verður afgr. einnig, því að hér er aðeins um dagskrármál að ræða. Það er kunnugt, að ýmis mál hafa verið hér til umr., sem miklar umr. hafa verið um og tekið mikinn tíma, þannig að ekki er hægt að koma öllum málum að á sama tíma. Ég vil lýsa enn yfir í heyranda hljóði, að ég mun sjá um, að málið fái afgreiðslu áður en þingi lýkur.