10.01.1945
Neðri deild: 101. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 92 í C-deild Alþingistíðinda. (2576)

125. mál, alþýðutryggingar

Frsm. (Stefán Jóh. Stefánsson):

Háttv. flm. telur, að n. eigi að athuga efni allra frv. Hann er þó svo vanur þingstörfum, að hann veit, að n. hafa yfirleitt ekki þá venju að athuga mál efnislega, ef þau falla undir mál, sem eru í heild til meðferðar. Ég læt það því ekki eftir háttv. þm. að ræða þetta mál efnislega, enda hef ég ekki umboð til þess frá nefndinni.