13.09.1944
Neðri deild: 49. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 92 í C-deild Alþingistíðinda. (2579)

106. mál, vitabyggingar

Flm. (Gunnar Thoroddsen):

Herra forseti. Frv. þetta er flutt samkv. áskorun hreppsnefndar Stykkishólmshrepps og fer fram á að fá vita á Súgandisey við Stykkishólm. Um ástæðurnar fyrir þessu máli leyfi ég mér að vísa til grg., sem er ýtarleg samþykkt hreppsnefndarinnar í Stykkishólmi. Tel ég ekki þörf að bæta neinu þar við, en legg til að vísa frv. til 2. umr. og allshn.