08.02.1945
Efri deild: 121. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 103 í C-deild Alþingistíðinda. (2598)

280. mál, útsvör

Flm. (Gísli Jónsson):

Herra forseti. Ég mun láta nægja að vísa til grg., sem fylgir þessu frv. Hún segir raunverulega allt, sem segja þarf um málið. En vegna þess, hversu þetta er mikið fjárhagsatriði fyrir þann hrepp, sem hér á hlut að máli, vildi ég mælast til þess við form. allshn., að hann afgreiddi þetta mál eins fljótt og mögulegt er, ef hægt væri að koma því í gegn á þessu Alþ. Ég mun ekki að öðru leyti ræða um málið á þessu stigi.