13.12.1944
Neðri deild: 91. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 172 í C-deild Alþingistíðinda. (2758)

129. mál, jarðræktarlög

Fjmrh. (Pétur Magnússon):

Ég svaraði fyrirspurn, sem hv. flm. beindi til mín, hvaða till. stj. mundi aðhyllast í þessu máli. Ég lét aðeins í ljós mína skoðun um það, en skal ekkert segja um skoðun stj. í heild. Að vísu hefur þetta verið rætt í rn. á fundi, en ég hef ekki umboð til að tala fyrir hönd stj. í heild sinni í þessu máli. Ég skal ekkert fullyrða um, hvað þar verður ofan á. Þar eru eins og gengur og gerist skiptar skoðanir um, hvað rétt sé í þessu, og má vera, að stj. láti frekar til sín taka, en um það liggur ekkert fyrir, og þetta svar mitt var aðeins mín eigin skoðun.