23.02.1945
Efri deild: 135. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 211 í C-deild Alþingistíðinda. (2813)
244. mál, vernd barna og ungmenna
Frsm. meiri hl. (Bjarni Benediktsson):
Ég get algerlega látið mér nægja að vísa til nál., sem meiri hl. allshn. hefur lagt fram. N. leggur til, að undanteknum hæstv. forseta d., að frv. sé vísað frá með rökstuddri dagskrá og hæstv. ríkisstj: falið að undirbúa málið betur. Sérstaklega er þess óskað, að fullkomnari skýringar verði gefnar en enn hafa fengizt á því, hverjar breytingar þessi stóri lagabálkur gerir á fyrri löggjöf. Það má að vísu segja, að n. geti borið þetta saman, en hér er um mjög stóran lagabálk að ræða, sem var lagður fram á síðustu stundu, og það er óvenju erfitt að átta sig á, hvað í þeim ákvæðum felst, auk þess sem hér er um mjög viðkvæmt mál að ræða.
Ég skal ekki að svo stöddu ræða meira um þetta, heldur vísa til nál.