23.10.1944
Neðri deild: 69. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 267 í C-deild Alþingistíðinda. (2913)

87. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Frsm. (Jón Pálmason):

Í tilefni af þessari fyrirspurn vil ég svara því, að þetta atriði var ekki sérstaklega rætt í n., og ég tel vafasamt, að það mundi heyra hér undir. Ef til vill hefði verið rétt að einskorða þetta við líknarstarfsemi, en við vildum ekki skjóta loku fyrir, að annað gæti komið til greina. En hins vegar var ekki ætlun okkar með því að hengja á þessa undanþágu meira en eðlilegt og sanngjarnt er.