30.01.1945
Efri deild: 114. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 1255 í B-deild Alþingistíðinda. (3056)

207. mál, Ólafsfjarðarkaupstaður, eignarnám lóðarréttinda

Gísli Jónsson:

Mig langar aðeins í sambandi við afgreiðslu þessa máls að spyrja um, hvort heimild sú, sem hér um ræðir, sé ekki í hafnarl. Ég veit ekki betur en að í þeim l. sé eignarnámsheimild almennt. Vildi ég benda á, að ef þau ákvæði eru í hafnarl., er óþarfi að vera að samþ. þetta frv. hér.