09.03.1944
Efri deild: 25. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 199 í B-deild Alþingistíðinda. (307)

27. mál, skipun læknishéraða

Forseti (StgrA):

Ég vildi mælast til þess við hv. þm., að þeir vildu stytta sem mest umr. um málið, því að tíminn til afgreiðslu þess er að verða naumur. Og þó að umr. sé ekki orðin svo löng, að hægt sé að stytta hana samkv. þingsköpum, vil ég mælast til þess, að menn haldi sem stytztar ræður.