12.12.1944
Efri deild: 86. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 1256 í B-deild Alþingistíðinda. (3088)

214. mál, útsvör

Félags- og dómsmrh. (Finnur Jónsson):

Herra forseti. — Ég sendi þetta frv. til allshn. eftir að það hafði verið ýtarlega athugað. Þetta er einungis staðfesting á brbl. og getur því ekki komið mönnum ókunnuglega fyrir sjónir. Ég hef haft með höndum innheimtu útsvara hjá allmörgum mönnum og hef eigi orðið var við, að það vekti deilur eða erfiði, og tala ég af reynslu sem forstjóri stórs fyrirtækis. Ég tel því, að eigi komi til mála að senda frv. þetta til umsagnar út í bæ.