28.09.1944
Neðri deild: 57. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 344 í C-deild Alþingistíðinda. (3089)

140. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Fjmrh. (Björn Ólafsson):

Herra forseti. — Þetta frv. er samhljóða bráðabirgðal., sem gefin voru út 26. apríl s. l. og fjalla um heimild til að breyta tímaákvörðunum og frestum í sambandi við álagningu tekju- og eignarskatts. Vísa ég um þetta til grg. frv. — Tel ég ekki nauðsyn á að fylgja þessu frv. frekar úr hlaði og óska þess, að því verði vísað til 2. umr. og nefndar.