02.03.1945
Efri deild: 140. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 354 í C-deild Alþingistíðinda. (3201)

140. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Ingvar Pálmason:

Þessari brtt. var útbýtt nú á fundinum, og það kann að vera, að fyrir lögfræðingum sé hún ljós. En ég tel, að þar sem hv. þm. hefur ekki gefizt kostur á að láta n. fjalla um þessa brtt., og þó að það kunni að vera, að efni hennar sé þarft, þá tel ég með öllu óviðeigandi að setja þetta inn á allra síðustu stundu, og ég segi því nei.