04.12.1944
Efri deild: 81. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 559 í C-deild Alþingistíðinda. (3732)
155. mál, nýbyggingarsjóður útvegsmanna
Frsm. (Gísli Jónsson):
Herra forseti. — Sjútvn. hefur á fundi nú í morgun rætt þetta mál, og hefur hún orðið sammála um brtt. við tölulið 4 í brtt. á þskj. 577 frá sjútvn. En breytingin er á þá leið, að í stað „að verja fé úr sjóðnum til kaupa á góðum, nýlegum skipum“ í 5. gr. komi: að leyfa að verja fé o. s. frv. Af þeim umr., sem fram hafa farið, virðist það alveg ljóst, að allir eru sammála um, að úr nýbyggingarsjóði sé ekki veitt til annars en bygginga á skipum. Hins vegar eru menn ósammála um leiðina til þessa. Mun því bezt að ganga til atkv. um þær till., er fyrir liggja. Ef þær verða samþ., er ástæða til að ræða við togarafélögin, en þau hafa lagt til, að frv. yrði samþ. óbreytt. Sömuleiðis vill n. fá tækifæri til að ræða við fjmrh. og atvmrh.
Ég sé ekki ástæðu til að taka fleira fram, en afhendi forseta þá skriflegu brtt., sem ég hef lýst.