04.12.1944
Efri deild: 81. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 559 í C-deild Alþingistíðinda. (3734)

155. mál, nýbyggingarsjóður útvegsmanna

Bjarni Benediktsson:

Ég vil þakka háttv. n. fyrir, að hún ætlar að athuga þetta mál betur milli 2. og 3. umr., og er þess vegna ekki ástæða til að ræða þetta mjög nú. En mér virðist, úr því að háttv. n. fór að breyta orðalagi, þá hefði hún einnig átt að breyta 3. gr. En eins og þetta stendur af sér, sé ég enga ástæðu til þess að deila um það. Þetta er hægt að lagfæra fyrir 3. umr., ef málið heldur áfram. Ég mun greiða atkv. með þeim brtt. við frv., sem fyrir liggja, en með þeim fyrirvara, að frv. þurfi athugunar við, ef þær eru samþ. En ég mun kannske flytja dagskrártill., ef frv. verður ekki komið í það horf, að ég sætti mig við það.