09.03.1944
Neðri deild: 30. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 260 í B-deild Alþingistíðinda. (398)

40. mál, nýbygging fiskiskipa

Einar Olgeirsson:

Út af þessum úrskurði hæstv. forseta vildi ég láta það koma í ljós, að hér hefur hæstv. atvmrh. sjálfur flutt brtt. um valdsvið atvmrh. sjálfs og yfirráð hans yfir alveg sérstaklega mikilvægu máli, og er hlaupið til þess að láta hann flytja slíkt, eftir að það er auðséð, að till. frá einstökum þm. og frá meiri hl. einnar n. gátu ekki komizt að. Ég álít þess vegna, að hér sé óeðlilega að farið, eins og ég hef áður haldið fram, og vil ég mótmæla úrskurði þeim, sem hæstv. forseti hefur gefið um þetta.