02.02.1944
Sameinað þing: 12. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 23 í D-deild Alþingistíðinda. (3998)

20. mál, eftirlit með skipum

Forseti (GSv):

Það verður sýnilega ekki lokið umr. um þetta mál á tilætluðum fundartíma nú, með því að fleiri hafa kvatt sér hljóðs en þegar hafa talað. En sá tími er að fullnast, sem ætlaður var þessum fundi eftir ákvörðun vegna annarra fundarstarfa: Verður því dagskrármálið tekið af dagskrá nú og umr. frestað.

Það er svo til ætlazt, að engir fundir verði háðir í Alþ. á morgun vegna minningarathafnar út af slysum.