10.03.1944
Neðri deild: 31. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 265 í B-deild Alþingistíðinda. (407)

40. mál, nýbygging fiskiskipa

Gísli Sveinsson:

Herra forseti. — Út af þessu fyrirkomulagsatriði, sem aðeins mun gilda til bráðabirgða, vil ég ekki stofna til þvælings á málinu, sem talið er nauðsynjamál, frekar en nú er orðið, og það nú á síðustu stundu. Ég tel því, að það eigi að samþ. frv. óbreytt, og segi því nei.

Brtt. 220,2 samþ. með 19:2 atkv.

Frv., svo breytt, samþ. með 20:1 atkv. og endursent Ed.

Á sama fundi var frv. tekið til einnar umr.