10.03.1944
Efri deild: 28. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 265 í B-deild Alþingistíðinda. (410)

40. mál, nýbygging fiskiskipa

Jónas Jónsson:

Ég vil taka það fram út af ummælum 6. þm. Reykv., að þetta mál var þaulrætt hér í gærkvöldi. Það hefur verið siður hér að veita afbrigði, þegar flýta hefur þurft málum, en þessi venja var freklega misnotuð hér í gærkvöld viðvíkjandi hinum skriflegu brtt., sem þm. Barð. bar hér fram. Nú vildi ég mælast til, að þeir menn, sem að því stóðu, verði ekki orsök þess, að málið verði frekar tafið.