10.03.1944
Efri deild: 28. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 266 í B-deild Alþingistíðinda. (413)

40. mál, nýbygging fiskiskipa

Frsm. minni hl. (Gísli Jónsson):

Ég skal ekki vera langorður, en þar sem vikið var hér að afskiptum mínum af þessu máli, þá gekk mér það eitt til að leggja fram hinar skrifl. till., að ég vildi flýta, en ekki tefja þetta nauðsynjamál. Ég tel því, að afskipti mín séu á allan hátt verjandi.