28.09.1944
Neðri deild: 57. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 1524 í B-deild Alþingistíðinda. (4193)

148. mál, dýrtíðarráðstafanir

Forseti (JörB):

Af hálfu flokkanna verður talað um þetta mál í þessari röð: Fyrst Sjálfstæðisflokkur, þar næst Alþfl., þá Framsfl. og þá Sósfl. og að lokum af hálfu hæstv. ríkisstj., ef hún óskar þess. Tvær umferðir verða viðhafðar. Sú fyrri varir í 30 mín. eða þar um bil, eftir því sem á kann að standa hjá ræðumönnum. Síðari umferðin verður um 15 mín., eftir því hvernig ástatt er þá um ræðutíma hvers flokks frá fyrri umferð.