22.11.1944
Neðri deild: 80. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 1618 í B-deild Alþingistíðinda. (4230)

148. mál, dýrtíðarráðstafanir

Ingólfur Jónsson:

Ég get ekki séð, að það sé nein hætta að samþ. þessa brtt., þó að hún e.t.v. hafi ekki neina praktíska þýðingu. Það er þó gott, að þingið láti í ljós vilja sinn, að dýrtíðinni sé haldið niðri. En vitanlega getur ríkisstj. ekki borgað þetta niður, ef fé er ekki fyrir hendi, og segi ég því já.

Frv., svo breytt, samþ. með 19:1 atkv. og afgr. til Ed.