07.03.1944
Sameinað þing: 27. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 185 í D-deild Alþingistíðinda. (4278)

29. mál, Suðurlandsbraut um Krýsuvík

Sigurður Kristjánsson:

Herra forseti. — Ég vil aðeins lýsa yfir, að það, sem hv. þm. Barð. hafði hér eftir mér, er gersamlega ósatt. Ég sagði það gagnstæða, að ég teldi ekki sæmandi að slá á framrétta hönd, sem rétt er til samkomulags. En um þennan hv. þm. á það vel við, að „ærna mælir, sás ævagi þegir, staðlausa stafi“.