10.03.1944
Sameinað þing: 29. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 281 í D-deild Alþingistíðinda. (4483)

72. mál, læknishéruð

Bjarni Benediktsson:

Orðalag upprunalegu till. er nú orðið nokkuð breytt, og vildi ég leggja til, að það væri athugað nokkuð af þeirri n., sem fjallað hefur um málið, ef hv. nm. telja það hægt fyrir morgundaginn. Hins vegar legg ég þetta ekki til, ef það ætti að verða til að setja málið í hina minnstu hættu.