22.02.1945
Efri deild: 134. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 1634 í B-deild Alþingistíðinda. (4536)
148. mál, dýrtíðarráðstafanir
Bjarni Benediktsson:
Herra forseti. — Hv. þm. Str. staðfesti í raun og veru það, sem var meginatriði míns máls. Ég hélt því fram, að Framsfl. hefði á s.l. ári viljað koma á bráðabirgðasamvinnu milli Sjálfstfl. og Framsfl. Þetta staðfesti hv. þm. Str. og vitnaði í það, að Framsfl. hefði á s.l. sumri einmitt viljað vera þátttakandi í fjögurra flokka stjórn. Hann vildi koma upp stjórn, sem raunar var ófriðarstjórn, til þess að taka upp harðar deilur innbyrðis í þjóðfélaginu, en vildi ekki einu sinni ljá máls á, að þeir flokkar, sem áttu að leggja út í þessar deilur, mynduðu fullkominn frið sín á milli.
Allt þetta staðfesti hv. þm. Str. Hann hefði alveg eins vel getað sagt, að Framsfl. hafi ekki viljað semja við Sjálfstfl. Það stendur óhaggað. En Sjálfstfl. vildi semja við Framsfl. um það sama, sem hv. þm. líka staðfesti, að var samið um við hina stjórnarflokkana, stöðvun dýrtíðarinnar.
Hv. þm. Str. sagði það sjálfur, eins og hv. þdm. hafa heyrt, að í stjórnarsamningnum voru ákvæði, sem allir skildu svo, að stöðvun yrði á almennum kauphækkunum. En ef svo skyldi vera, sem ég hygg, að ekki sé rétt, að almennar kauphækkanir hafi eigi að síður átt sér stað, þá er þess að gæta, að það er jafnan hægt að rjúfa gerða samninga, og það væri auðvitað brot og samningsrof, ef slíkar almennar kauphækkanir hafa átt sér stað.
En við almennar kauphækkanir má ekki jafna því, þó að kaup hafi verið hækkað á einstöku stöðum úti um land, þar sem það var orðið of lágt miðað við almennt kaupgjald í landinu.
Hv. þm. mótmælti því, að fyrrverandi forsrh. hafi verið Framsfl. sérstaklega hlynntur, vegna þess að hann hafi níðzt á framsóknarmönnum og þ. á. m. beitt sér gegn sr. Birni Magnússyni. Ég vil nú ekki, að ég sé skoðaður sem framsóknarmaður, þótt ég sé hlynntur Birni Magnússyni og vilji benda á, að Björn Þórðarson sýndi sig að vera ekki trúandi til þess sem embættismanni að vera í slíku embætti, þó að hann sé mjög gegn maður.
Annars vildi ég minna hv. þm. Str. á einhverja hina furðulegustu embættisráðstöfun, sem hér hefur heyrzt, ef það er satt, að fyrrverandi forsrh. hafi veitt sýslumanni, sem naumast hefur átt skilið að fá embætti, þriggja ára frí frá embætti. Á ég þar við sýslumanninn í Suður-Múlasýslu. Þetta er gegn maður, og ég hef ekkert á móti honum, en þetta er mjög mætur framsóknarmaður og mjög tengdur mætum framsóknarmanni, sem á sæti hér í þessari hv. d., og er fullyrt, að broddar Framsfl. hafi fengið fyrrverandi forsrh. til þessarar fáheyrðu ráðstöfunar á embættinu.