26.02.1945
Efri deild: 136. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 1650 í B-deild Alþingistíðinda. (4560)
148. mál, dýrtíðarráðstafanir
Gísli Jónsson:
Aðeins örstutt. Það kom fram í ræðu hv. þm. Str., að ég væri á móti því að miða verð á landbúnaðarafurðum við álit sex manna n, næsta haust. Ég sagði, að ég svo á, að þessi réttur væri ekki lagalegur, eftir að l. voru felld úr gildi. Ég hef ekkert sagt um það, hvernig ætti að verðleggja vörurnar, þegar annað viðhorf blasti við.
Ég vildi bara láta þetta koma hreint fram, því að ræða hv. þm. Str. gaf tilefni til að ætla, að ég væri algerlega á móti því, en það er alger misskilningur.