18.01.1945
Efri deild: 105. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 1651 í B-deild Alþingistíðinda. (4569)

256. mál, gjald af söluverði fisks erlendis

Magnús Jónsson:

Herra forseti. — Þetta frv. og einnig það næsta á dagskrá (frv. til l. um veltuskatt) er flutt af meiri hl. fjhn. að tilmælum hæstv. fjmrh. N. hefur út af fyrir sig ekki tekið afstöðu til þeirra, og vil ég því geta þess strax, að n. mun athuga þau, og væri því ef til vill réttara, að þeim yrði vísað til hennar aftur að lokinni 1. umr. Annars mun hæstv. fjmrh. væn;anlega gera grein fyrir þessum tveim frv.