27.02.1945
Efri deild: 137. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 1659 í B-deild Alþingistíðinda. (4605)

256. mál, gjald af söluverði fisks erlendis

Fjmrh. (Pétur Magnússon):

Herra forseti. — Ég vil aðeins mæla með því, að till. hv. þm. Barð. verði samþ. Ég get ekki séð, að breyt. þær, sem gerðar voru á þessu frv. í Nd., séu til bóta. Ég tel eðlilegast, að skattanefndir reikni út þennan skatt sem aðra, og er auðvelt fyrir þær að fylgjast með því, að framtalið sé rétt, því að þær hafa öll skjöl hér að lútandi.

Ég legg því til, að till. hv. þm. Barð. verði samþ.