29.01.1945
Efri deild: 113. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 1745 í B-deild Alþingistíðinda. (4652)

113. mál, laun starfsmanna ríkisins

Forseti (StgrA):

Mér hefur borizt skrifleg brtt. frá hv. 6. þm. Reykv. við 20. gr. frv. Á undan 2. málsgr. komi ný málsgr., svo hljóðandi: Vegamálastjóri 14000 kr. Og orðið „vegamálastjóri“ falli niður af 2. málsgr., sem verður 3. málsgr.

Brtt. er of seint fram komin, og þarf tvöföld afbrigði fyrir henni.