29.01.1945
Efri deild: 113. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 1746 í B-deild Alþingistíðinda. (4655)

113. mál, laun starfsmanna ríkisins

Forseti (StgrA):

Útbýtt er á fundinum brtt. á þskj. 976 og 978. Auk þess hefur mér borizt skrifl. brtt. frá hæstv. menntmrh., svo hljóðandi: [Sjá þskj. 983].

Þar sem brtt. þessar eru of seint fram bornar, verður að veita afbrigði frá þingsköpum til þess að þær megi taka til meðferðar, og skal ég leyfa mér að leita afbrigða fyrir þær allar í einu.